
Veðurstofan brosir í dagÍslendingar líka enda gott veður og að koma helgi
Mynd: Víkingur
Það lítur allt út fyrir fremur hæga breytilega átt í dag og þá verður skýjað með köflum - lítilsháttar skúrir á víð og dreif. Milt veður, en þó léttara yfir suðaustanverðu landinu. Þar gæti hiti náð að sautján stigum í dag, er best lætur.
Í kvöld gengur síðan í suðaustan kalda vestast á landinu, með nokkurri rigningu.
Á morgun verður austlæg átt, víða 5-10 metrum á sekúndu, allhvasst syðst á landinu.
Framan af degi verður bjart veður með köflum sem og úrkomulítið, það fer svo að rigna, af og til, á suðurhelmingi landsins síðdegis.
Í norðrinu þykknar upp með vætu um kvöldið og hiti verður svipaður, hlýjast um landið norðan- og vestanvert á morgun.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Komment