1
Fólk

Eva Laufey færir sig um set

2
Pólitík

Áslaug neitar því að hafa verið drukkin á Alþingi

3
Innlent

Lögreglan óskar aðstoðar almennings við mannaleit

4
Heimur

Fjögurra ára drengur drukknaði á Tenerife

5
Fólk

Bylgja vill fá sannleikann frá Landlæknisembættinu

6
Innlent

Mótmæla mótmælum á Austurvelli

7
Innlent

Annar maður látinn eftir brunann á Hjarðarhaga

8
Landið

Eggert hrækti á lögreglumann og bauðst til að skyrpa á annan

9
Menning

Blóðugar varir Bríetar

10
Innlent

Safnaði nægum pening til að hjálpa 30 fjölskyldum á Gaza

Til baka

Heift Baldvins

Baldvin Þorsteinsson og Þorsteinn Már Baldvinsson
Feðgarnir í SamherjaBaldvin Þorsteinsson tekur við sem forstjóri Samherja af föður sínum.
Mynd: Samherji

Óttast er að með brotthvarfi Þorsteins Más Baldvinssonar úr forstjórastóli Samherja muni yfirbragð þessa stærsta fyrirtækis Íslands ekki mildast, nema síður sé. Félagið hefur verið í hörðum deilum á fjölmörgum vígstöðvum, bæði gagnvart stjórnmálafólki á Íslandi, eftirlitskerfinu, fjölmiðlum og svo yfirvöldum í Namibíu, eða þeim hluta þeirra sem þáði ekki ráðgjafagreiðslur heldur lét rannsaka þær.

Arftaki Þorsteins Más er sonur hans, Baldvin Þorsteinsson. Hann vakti landsathygli árið 2019 þegar hann stuggaði við Má Guðmundssyni, þáverandi Seðlabankastjóra, þegar Már reyndi að sýna þá kurteisi að taka í höndina á Þorsteini í húsakynnum Alþingis. „Hafðu smá sómakennd og drullaðu þér í burtu,“ sagði Baldvin.

Baldvin Þorsteinsson

Var þar að sjá augljósa fyrirlitningu nýja forstjóra Samherja á grundvallarstofnun samfélagsins og svo það framferði sem hann var tilbúinn að sýna á sér fyrir framan allra augum. Nú er sami maður með yfirráð yfir stórum hluta aflaheimilda við Ísland, ásamt systkinum sínum, og er ekki lengur hægt að segja að þau hafi aflað þeirra frá grunni með dugnaði. Eftir stendur reiðin yfir því mótlæti sem Samherji og faðir forstjórans hafa mætt síðustu ár.

Í gær, daginn áður en tilkynnt er um að Baldvin taki við forstjórastólnum af föður sínum, var fjallað harkalega um einstakan fréttamann Ríkisútvarpsins, sem sakaður er um „persónulegt hatur“ og reyna að grafa undan starfsheiðri hans og atvinnuöryggi fyrir að fjalla um að Samherji nýtti þjónustu Jóns Óttars Ólafssonar og njósnafyrirtækisins PPP. „Er vert að spyrja hvort ákveðnir blaðamenn séu hreinlega hæfir til að fjalla um málefni félagsins?“ skrifar Samherji.

Spurningin er í framhaldinu hversu margir munu þurfa að „drulla sér í burtu“, áður en yfir lýkur, fyrir arftakann í Samherja?

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


flugvélindia
Myndband
Heimur

Öskrandi farþegar í eldingaflugi óttuðust um líf sitt

Tenerife
Heimur

Fjögurra ára drengur drukknaði á Tenerife

1_Emma-Watson-HARRY-POTTER-AND-THE-GOBLET-OF-FIRE-2005
Heimur

Stjarna úr Harry Potter í bráðaaðgerð vegna öndunarörðugleika

Áslaug Arna þingmaður
Pólitík

Áslaug neitar því að hafa verið drukkin á Alþingi

Líf Magneudóttir.
Pólitík

Líf telur mikilvægt að VG bjóði fram undir eigin merkjum

Nýifoss
Landið

Nýifoss þornar upp ef Hagavatnsvirkjun verður að veruleika

Kerti
Innlent

Annar maður látinn eftir brunann á Hjarðarhaga

inga hlátur 2
Innlent

Nýtt hjúkrunarheimili mun rísa á Akureyri

Loka auglýsingu