
Patrekur Jóhannesson, einn besti handboltamaður í sögu Íslands, og Rakel Anna Guðnadóttir hafa sett hús sitt í Garðabæ á sölu.
Um er að ræða hús sem byggt var árið 2021 og er vel staðsett 278,2 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum 34,2 fermetra bílskúr á fallegum útsýnisstað í Urriðaholti í Garðabæ.
Patrekur og Rakel settu húsið á sölu vorið 2024 og vildu þá fá 242 milljónir fyrir. Nú rúmu ári seinna hafa þau ákveðið að lækka verðið og vilja aðeins fá 229 milljónir fyrir þetta glæsilega hús.
Eignin stendur á 743,0 fermetra lóð sem er fullfrágengin með stórri hellulagðri innkeyrslu og stéttum fyrir framan hús með hitalögnum undir og mjög stórri og skjólsælli verönd á baklóð með heitum potti, gufubaðshúsi, útisturtu, grilleldhúsi o.fl.
Athygli vekur að Patrekur og Rakel eru tilbúin til að athuga með skipti á rað- eða parhúsi í Garðabæ.








Komment