
Hallgrími Helgasyni barst gjöf úr nokkuð óvæntri átt í gær, þegar stöllurnar Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnardóttir gáfu honum bæði auðmannsgleraugu og húðkrem.
Rithöfundurinn og listmálarinn Hallgrímur Helgason sló nýverið í gegn með pistli sem hann las fyrir Heimildina þar sem hann fer yfir það sem hann kallar auðvörn stjórnarandstöðunnar á Alþingi og stuðningsmanna hennar. Pistilinn má sjá hér.
Hlaðvarpskonunum Ólöfu Skaftadóttur og Kristínu Gunnarsdóttur fannst mikið til pistilsins koma og ákváðu að færa Hallgrími skemmtilega gjöf. Og rithöfundurinn þakkaði fyrir sig á sinn hátt á Facebook í gær. Hann ritaði:
„Fékk ritlaun í dag, úr óvæntri átt. “Komið gott” greinilega með húmorinn í lagi. Takk fyrir mig Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnars! Auðmannagleraugun gefa mér nýja sýn á málin og ég er strax orðinn annar af þessum karakterkremum. Nú bíð ég bara eftir Karíus og Baktus kasettunni frá Jens, hundameðalinu frá Zimsen og hvítvínsflösku frá Áslaugu Örnu, já og kannski tveimur kúlum from my man in Brim.“
Komment