
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Halldór Jón Gíslason í embætti skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi en greint er frá þessu í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.
„Halldór hefur starfað við skólann frá árinu 2017 sem aðstoðarskólameistari og áfangastjóri. Hann hefur einnig starfað við verkefnastjórn á Hvalasafninu á Húsavík og við kennslu í Framhaldsskólanum auk annarra starfa.
Halldór er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í mannauðsstjórnun auk kennsluréttinda í framhaldsskóla frá sama skóla. Hann hefur lokið grunnnámi í sagnfræði við Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningunni
Alls sóttu tveir um embættið en auk Halldórs sótti Helena Eydís Ingólfsdóttir um starfið. Athygli vekur að þau eru bæði hluti af sveitarstjórn Norðurþings en Helena var kosin fyrir hönd Sjálfstæðismanna og er Halldór Jón varamaður fyrir Vinstri Græna.
Komment