
Fyrrum forsetaframbjóðandinn og núverandi alþingismaðurinn, Halla Hrund Logadóttir, keypti raðhús í Selásnum ásamt eiginmanni sínum, Kristjáni Frey Kristjánssyni.
Er hér um að ræða 203,7 fermetra endaraðhús sem er á afar góðum útsýnisstað í þessu fallega hverfi.
Var húsið byggt árið 1984 og því vel við haldið.
Hér er um er að ræða pallahús með bílskúr. Eldhús er á miðhæð, stofa á efstu hæðinni og herbergin á neðsta pallinum og engin byggð er fyrir neðan húsið. Og er glæsilegt útsýni yfir Breiðholtið og Elliðaárdalinn.
Halla Hrund og Kristján greiddu hundrað og fimmtíu milljónir króna fyrir húsið, en þau seldu íbúð sína í Fossvogi nýverið fyrir hundrað milljónir.
Komment