
Ungur maður sem mótmælti mótmælum þjóðernissinna á laugardag sagði þjóðernissinnana hafa verið fjandsamlega og hafa meðal annars skyrpt í átt að sér.
Hafþór Brynjar er ungur maður sem mætti á mótmæli gegn kynþáttahatri á Ingólfstorgi á laugardaginn og fór síðan með hópi annarra aðgerðarsinna til þess að mótmæla mótmælum þjóðernissinnar sem fram fór á Austurvelli á svipuðum tíma.

Stemningin á Austurvelli var mjög rafmögnuð en blaðamaður Mannlífs var á vettvangi og tók bæði ljósmyndir og myndskeið. Sem fyrr segir upplifði Hafþór Brynjar mótmælin sem fjandsamleg en hann lýsti því betur í rituðu svari til Mannlífs:
„Ég upplifði mótmælin sem frekar aggressive eða fjandsamleg. Fólk var að labba upp að mótmælendum til að skyrpa [nærri þeim] og reyna rífa fána eða persónulegar eignir af okkur. Ég heyrði líka að sumir af stærri mönnunum væru að miða á minna fólkið sem áttu erfiðara með að verja sig,“ segir Hafþór Brynjar. Þá segist hann hafa heyrt hótanir og ógnandi setningar sem beint var að þeim.

„Sumar af hótunum og setningum sem ég heyrði voru „ég er dauði og mun taka þig“ „ég mun finna þig“ og „þið eigið ekki heima hérna“.“
Hafþór Brynjar sagði aukreitis að hann hafi upplifað þjóðernissinnana sem „mjög erfitt fólk“ sem ekki hafi hlustað á rök.

„Ég upplifði líka hinn hópinn sem mjög erfitt fólk. Þau voru að labba upp að fólki eins og mér og dreifa algjöru rugli, neituðu að koma með neinar staðreyndir eða tölfræði og þegar ég sýndi sönnun fyrir mínu máli þá neituðu þau að hlusta.“

Að lokum segist Hafþór Brynjar hafa neyðst til að fara fyrr af mótælunum af ótta við að verða ekki eltur.
„Mér fannst líka leiðinlegt að mér og öðrum leið eins og okkur væri ógnað fyrir að deila skoðunum, ég var varla að tjá mig um mitt mál en samt fór ég fyrr úr mótmælunum svo fólk myndi ekki elta mig.“


Komment