
Hafnaboltaleikmaðurinn Wander Franco hefur verið fundinn sekur um kynferðislega misnotkun á barni en dómur í máli hans féll í gær í Dóminíska lýðveldinu.
Franco, sem er leikmaður Tampa Bay Rays í MLB-deildinni í Bandaríkjunum, hafði átt í óviðeigandi sambandi við 14 ára stúlku að mati dómarans. Þá var hann einnig fundinn sekur um að hafa greitt móður stúlkunnar pening til að fá hana til að samþykkja sambandið.
Leikmaðurinn fékk tveggja ára skilorðsbundinn dóm en móðirin var fundin sek um vændismansal og var hún dæmd í 10 ára fangelsi. Saksóknarar fóru fram á að Franco fengi fimm ára dóm fyrir sitt afbrot.
Franco hefur þótt einn af bestu ungu leikmönnum MLB-deildarinnar og mun deildin sjálf rannsaka málið og úrskurða um hvort hann fái bann eða ekki.
Komment