Gæsluvarðhald hefur verið framlengt um viku yfir fimm einstaklingum sem grunaðir eru um stórfellda fíkniefnaframleiðslu víðsvegar á landsbyggðinni
Áfram í gæsluvarðhaldi vegna gruns um fíkniefnaframleiðslu
Í síðustu viku tóku fjörutíu lögreglumenn og sérfræðingar, auk sérsveitar ríkislögreglustjóra, þátt í stórri aðgerð þar sem farið var í húsleitir á nokkrum stöðum á Norðurlandi eystra, meðal annars í Borgarnes og á Raufarhöfn.
Fimm manns sem grunuð eru um skipulagða brotastarfsemi sem og framleiðslu fíkniefna á nokkrum stöðum landsbyggðinni hafa verið úrskurðuð í áframhaldandi vikulangt gæsluvarðhald, en áður hafði fólkið verið í gæsluvarðhaldi í viku.
Kemur fram í tilkynningu á facebooksíðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra að öll þau fimm grunuðu hafi kært úrskurðinn til Landsréttar.
Komment