
Flytja þurfti þrjá einstaklinga á bráðamóttöku af stórtónleikum sem haldnir voru í Laugardalshöll í gærkvöldi.
Samkvæmt gestum sem mættu á tónleikanna var gífurlega mikill troðningur á tónleikunum og þá sérstaklega í anddyri Laugardalshallar þar sem salerni hússins eru staðsett. Á samfélagsmiðlum segir fólk frá því að gestir hafi hreinlega gefist upp að bíða eftir að því að komast á salernið og gert þarfir sínar á gólfið.
Á myndböndum sem eru í dreifingu af ástandinu má sjá troðning og slagsmál milli gesta en yfirskrift tónleikanna var Fermingarveisla aldarinnar og komu margir af frægustu tónlistarmönnum Íslands fram.
@stinaasa Hélt ég væri að láta lífið um tíma en lifði þetta af 🥴🫨 #fm95blö #tónleikar #íslenskt ♬ original sound - Stína
Í frásögn gests á Reddit greinir hann frá því að lögreglan hafi reynt að grípa inn í en það hafi gengið illa.
„Ég var fastur þarna í 20 min án þess að færast nánast neitt. Fólk var bókstaflega grenjandi í kringum mig. Það var svo mikill troðningur að ég gat ekki einu sinni teygt mig í símann til að taka það upp. Ég horfði þá stelpur sem voru töluvert minni en ég að reyna að berjast fyrir að ná andardrætti. Ég er 98kg og á tímabili var ég ekki að snerta jörðina. Á endanum á þvögunni var stigi og þar hrundi fólk yfir hvort annað, enda stýrði enginn því hvert hann ætlaði. Lögreglan ætlaði að bregðast snemma við en ég sá nokkra lögreglumenn sem festust sjálfir í þvögunni og urði bjargarlausir.“
Komment