
Á aðalfundi Samtaka íþróttafréttamanna var Edda Sif Pálsdóttir, íþróttafréttamaður á RÚV, kjörin formaður til næstu tveggja ára; hún tekur við af Tómasi Þór Þórðarsyni - sem var formaður undanfarin sex ár.
Með þessu kjöri er blað brotið í sögu samtakanna; Edda Sif er fyrsta konan í 69 ára sögu samtakanna sem kjörin er formaður, en hún var áður ritari stjórnar SÍ; hafði setið í stjórn samtakanna frá árinu 2019.
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson - sem starfar á RÚV - verður áfram gjaldkeri; hefur átt sæti í stjórninni í tólf ár. Valur Páll Eiríksson frá Sýn var kjörinn ritari, kemur nýr inn í stjórnina. Þá verða þeir Sindri Sverrisson - Sýn - og Einar Örn Jónsson - RÚV - áfram varamenn.
Komment