
Nú stendur til að útvíka skilyrði til framhaldsnáms. Nú er ekki lengur aðalmálið að gera gott mót, leggja á sig og læra.
En fyrir hvern er þetta frumvarp?
Þann sem lagði á sig að læra jafnt og þétt í gegnum sín tíu ár í grunnskóla, sinnti heimanámi, mætti til að gera sitt besta eftir fremsta megni. Nei takk, það er bara alls ekki nógu gott að skara framúr.
Nýr barna og menntamálaráðherra segist vera að svara ákalli nemenda sem vilja val um fleiri skóla burtséð frá frammistöðu.
Ég spyr þá einfaldlega, má engum ganga vel?
Ef eitthvað er þá gerir það inntökuskilyrðin enþá loðnari. Svona eins og í táningsdrama þáttum frá BNA, þar sem ekki er nóg að vera með góða einkunn. Það þarf líka að tjekka í öll önnur box, þátttaka í íþróttum, leiklist, tónlist, félagsstarfi, nemendaráði og svo mætti lengi telja. Kanski tilheyra undirokuðum hópum samfélagsins líka.
Skuggahliðar væru þá til að mynda aukinn þrýstingur á þjálfara, tómstundaleiðoga og aðra sem veita börnuþ þjónustu að falsa umsagnir bara til að nefna það augljósasta.
Eitt er víst, þetta er svo sannarlega ekki gert þágu nemendanna því ef þetta gengur eftir er námsframvinda ekki lengur það sem kemur þér áfram í skólann sem þú vilt.
Höfundur er SKÓLAíþróttakennari
Komment