
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur rætt við lögregluna í Frakklandi vegna hins hörmulega máls er kom upp á Reykjavik Edition-hótelinu á laugardaginn, en þá fundust franskur karlmaður og dóttir hans látin.
Rannsókn lögreglunnar er í fullum gangi og rannsókn á vettvangi stendur ennþá yfir. Verið er að ræða við fólk sem var á svæðinu er þetta gerðist og einnig við frönsku konuna sem grunuð er um verknaðinn, sem og vitni.
Grunaða konan liggur enn á spítala og er líðan hennar talin stöðug og hún ekki í lífshættu.
Í grein á mbl.is segir að franska sendiráðið á Íslandi vilji ekki tjá sig um málið á þessum tímapunkti.
Komment