Það var starfsmaður hótelsins Reykjavík Edition er tilkynnti lögreglu um að franskur maður og dóttir hefðu fundist látin í herbergi hótelsins á fjórðu hæð en eiginkona mannsins og móðir stúlkunnar var hneppt í varðhald
Fjölskyldan sem er fannst látin á Reykjavík Edition hótelinu á laugardaginn var með franskt ríkisfang, en hins vegar bjó fjölskyldan í Dublin á Írlandi. Samkvæmt lögreglunni fannst fjölskyldan í herbergi sínu.
Það var starfsmaður hótelsins er fann fólkið dáið, en það átti bókað flug heim daginn sem hinn hræðilegi atburður gerðist.
Alveg ljóst var frá byrjun að andlátin hefðu borið að með voveiflegum eða saknæmum hætti. Kona, eiginkona mannsins og móðir konunnar, var handtekin á hótelinu. Hún var sjálf með afar alvarlega áverka.
Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í miðlægri deild lögreglu, fer fyrir rannsókn málsins og í samtali við RÚV sagði hann að „eitt af því fyrsta sem við gerðum var að setja okkur í samband við franska sendiráðið og með aðstoð þeirra tókst okkur að hafa upp á ættingjum, aðstandendum hinna látnu. Við erum líka komin í samband við frönsk lögregluyfirvöld en að svo stöddu hafa þau ekki sýnt áhuga á að koma til landsins en ekki útilokað að svo verði.“
Sú staðreynd að fólkið var búsett í Dublin, höfuðborg Írlands gerir rannsóknina öllu umfangsmeiri og erfiðari sagði Ævar ennfremur.
Fjölskyldan kom til Íslands þann sjöunda júní og var ætlunin að dvelja hér í eina viku, og þau áttu bókað flug um sama leyti og þau fundust dáin.
Getur Ævar Pálmi ekki svarað því hvernig konan, sem er í haldi lögreglu, fékk áverkana: „Það er eitt að því sem rannsóknin snýr að en ég mun ekki tjá mig um það að svo stöddu.“
Konan er ennþá sjúkrahúsi. Ástand hennar er stöðugt og lögregla hefur rætt við hana og enn er unnið að því að fá fram betri mynd af atburðunum hræðilegu sem nú skekja íslenskt samfélag:
„Það er bara eitt af þvi sem okkar vinna snýr að, að það er að fá skýrari mynd oig við erum að vinna að því á fullu. En rannsóknin er á byrjunarstigi en miðar ágætlega.“
Komment