
Í dagbók lögreglu frá því í nótt og gærkvöldi er greint frá því að tilkynnt hafi verið um innbrot í geymslu. Lögreglan fór á vettvang og er málið í rannsókn.
Einn einstaklingur var fluttur á bráðamóttöku eftir vinnuslys en hann var sem betur fer aðeins með minni háttar meiðsli að sögn lögreglu.
Tilkynnt var um mann sofandi í runna. Lögreglan vakti hann og ók honum í skjól.
Ökumaður var stöðvaður vegna gruns um of hraðan akstur en hann ók á 83km/klst þar sem hámarkshraði er 40. Hann var sviptur ökuréttindum á staðnum til bráðabirgða. Þrír aðilar voru handteknir vegna gruns um brot á lögreglusamþykkt. Þeir áttu allir sameiginlegt að vera í mjög annarlegu ástandi. Þeir voru allir vistaðir í klefa.
Tilkynnt var um aðila að banka á hurðar en tilkynnandi kannaðist ekki við aðilann. Lögregla fór og kannaði málið.
66 mál voru skráð í kerfi lögreglu en fimm gistu í fangageymslu í nótt.
Komment