
Lítið að gera hjá lögreglu í nóttMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur
Í dagbók lögreglu frá því í nótt er greint frá því að tilkynnt hafi verið um að rétt eftir klukkan tvö í nótt hafi lögregla og slökkvilið send með forgangi vegna mikils elds í efnalaug. Slökkviliði gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins en ljóst að um mikið eignatjón er að ræða.Málið er í rannsókn.
Tilkynnt var um umferðarslys í miðbænum rétt eftir kvöldmat en þar hafði bifreið verið ekið inn í hliðina á strætisvagni. Einhver minniháttar slys var á fólki að sögn lögreglu.
Tveir ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur sviptir ökuréttindum og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Annar þeirra var einnig með hníf meðferðis og fær líka kæru fyrir vopnalagabrot.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Komment