
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að Edition-hótelinu í miðborginni á áttunda tímanum í morgun, þar sem tveir ferðamenn fundust látnir og þriðji með áverka. Í tilkynningu lögreglu segir að rannsókn málsins sé á algjöru frumstigi. Því verði ekki unnt að greina frá því nánar að svo stöddu, en frekari upplýsingar verða sendar fjölmiðlum í dag, eða eftir því sem málinu vindur fram.
Mannlíf hefur fengið staðfestingu á því að atvikið hafi átt sér stað á Reykjavík Edition-hótelinu. Og samkvæmt sömu heimildum var einni hæð hótelsins lokað af sérsveit ríkislögreglustjóra. Gestum er sagt að halda sig inni á herbergjum sínum.
Fjórir sjúkrabílar voru sendir á vettvang og einn dælubíll.
Komment