Mikið tjón var á Háaleitisbraut í nótt þegar kviknaði í Efnalauginni Björgu en fjölskyldufyrirtækið hefur verið starfandi í 70 ár.
Kristinn Guðjónsson, eigandi Bjargar, segir við RÚV brunann vera mikið áfall og högg. Hann segir þó að fjölskyldan muni ekki láta þetta slá sig út af laginu og að efnalaugin verði opnuð aftur sem fyrst. „Það þarf eflaust að hreinsa margt aftur sem var tilbúið til afhendingar. Bara svo lyktin sitji ekki í.“
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru fjórir slökkviliðsbílar sendir á vettvang og sprengingar mættu slökkviliðsmönnum þegar á Háaleitisbraut var komið. Þá hafi vel gengið að slökkva eldinn en alls tók tvo klukkutíma frá upphafi til enda.
Ekki liggur fyrir hvað olli eldinum en skemmdirnar séu aðeins bundnar við efnalaugina. Málið er nú í rannsókn lögreglu.


Komment