
Fyrirlesarinn Gad Saad er afar umdeildur en hann kom til Íslands nýverið og hélt fyrirlestur. Hann telur að veggmynd eftir listamanninn Þránda Þórarinsson sýni stuðning við Hamas.
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason er ekki hrifinn af þessum fyrirlesara og uppnefnir hann:
„Þessi náungi var fluttur hingað inn um daginn og látinn halda fyrirlestur í Hörpu. Ég segi bara eins og er, miðað við þetta, hvílíkur endemis auli.“
Vísar Egill í færslu hins umdeilda Gad Saad - en sá hélt fyrirlestur í Hörpu um daginn.
Gad Saad er kanadískur þróunarsálfræðingur, líbanskur gyðingur sem starfar við Concordia háskóla í Montreal í Kanada. Hann heldur úti hlaðvarpi þar sem fjallað er um þjóðfélagsleg málefni og hefur hann haft nokkur áhrif á hægri öfgamenn - til dæmis Elon Musk, emeð þeirri hugmynd að samúð í heiminum sé að eyðileggja lífið á Vesturlöndum. Einnig hefur hann viðrað skoðanir sínar á konum, transfólki og múslimum, og óhætt að segja að hann sé ekki jákvæður í Þeirra garð.
Gad Saad kom svo við á íslenskum bar, Gilligogg, þar sem hanga uppi tvö málverk eftir myndlistarmanninn Þránd Þórarinsson; birti Saad myndir af listaverkunum og hæddist að þeim í færslu á samfélagsmiðlum:
„Þessar tvær veggmyndir með þekktum íslenskum listamanni sameina íslamskar/palestínskar táknmyndir og þjóðsögur Íslands. Ég vissi ekki að saga Íslands væri undir svona miklum áhrifum frá frelsishetjunum í Hamas,“ skrifaði Saad, eins og lesa má um á DV.
Færsla Saad fór ekki sérlega vel í Íslendinga:
„Getur hann ekki bara látið íslenska menningu í friði?“ spyr Halldór Auðar Svansson, fyrrverandi borgarfulltrúi.
„Ekki þekki ég mikið til þessa Gad Saads – en auðvitað styður hann þjóðarmorðingjana – segir allt um manninn,“ segir Hjálmtýr Heiðdal, formaður félagsins Ísland-Palestína.
Þá hefur önnur færsla Saad, þar sem hann lýsir Gretu Thunberg sem „vangefnum Svía“ einnig farið öfugt ofan í marga.
Komment