
Í dagbók lögreglu frá því í nótt er greint frá því tveir einstaklingar í annarlegu ástandi hafi verið handteknir vegna líkamsárásar í miðbænum.
Í Breiðholti var tilkynnt um þjófnað úr verslun og líkamsárás og hlaut fórnarlambið minni háttar meiðsli. Samkvæmt lögreglu komst gerandinn undan og ekki liggur fyrir hver hann er. Í Árbænum var einnig tilkynnt um líkamsáras og hlaut fórnarlambið minni háttar meiðsli og var árásarmaðurinn flúinn þegar lögreglan mætti á vettvang.
Þá sinnti lögregla útkalli um reiðhjólaslys í Grafarvogi en kom í ljós að hjólreiðamaðurinn var drukkinn. Hann var fluttur á bráðamóttökuna eftir slysið þar sem hann var skoðaður. Samkvæmt lögreglu má hann búast við sekt.
Nokkrir ökumenn voru teknir fyrir að auka undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis.
Komment