
Drónasveit var notuð til að finna einstakling er ráðist hafði að öðrum einstaklingi í úthverfi Reykjavíkur, og síðan lagt áflótta,en það kemur fram að árásin hafi verið alvarleg.
Naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fulltingis drónasveitar við að finna mann, sem hafði beitt annan hörðu ofbeldi með þeim afleiðingum að hann hlaut alvarlega áverka í Árbæjarhverfi, og flúði árásarmaðurinn af vettvangi glæspsins.
Kemur fram að lögreglumenn veittu manninum fyrstu hjálp, bundu um sár, og hlúðu vel að manninum áður en hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild.
Árásarmaðurinn gistir fangaklefa.
Þá var ölvaður maður sem var vopnaður hamri á ferðinni. Hann braut rúður í tveimur bílum í miðborginni og var skömmu síðar tekinn höndum og vistaður í fangaklefa.
Svo réðust tveir réðust að einum með ofbeldi í Neðra-Breiðholti, rændu hann verðmætum og er málið enn óupplýst þar sem sá sem rændur var gat aðeins gefið óljósa lýsingu á því sem gerðist og vildi lítið sem ekkert tala við lögreglumenn.
Komment