
Banaslys varð í Hrunamannahreppi í gær þegar dráttarvél rann fram af háum bakka og hafnaði í Hvítá. Drengurinn, Víglundur Þorsteinsson, fæddur árið 2015, lést í slysinu. Hann bjó að Haukholtum ásamt foreldrum sínum og þremur systkinum. Slysið átti sér stað skammt frá heimili fjölskyldunnar.
Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi fannst Víglundur skömmu eftir slysið og var úrskurðaður látinn á vettvangi. Unnið er að því að ná dráttarvélinni upp úr ánni, en aðstæður á vettvangi eru erfiðar.
Lögreglan þakkar öllum viðbragðsaðilum sem komu að björgunaraðgerðum í gær, sem og þeim sem hafa tekið þátt í að reyna að ná vélinni upp úr ánni í dag. Rannsókn á tildrögum slyssins er á frumstigi.
Bænastund verður haldin í Hrunakirkju í kvöld klukkan 20:00 í minningu Víglundar og til stuðnings aðstandendum.
Komment