
Dorrit Moussaieff auglýsir nýjustu bók vinar síns David Walliams í nýrri Instagram-færslu.
Fyrrum forsetafrú Íslands, Dorrit Moussaieff leiðist hreint ekki að sitja fyrir á myndum með frægum vinum sínum. Á Instagram-síðu hennar má til að mynda sjá hana á mynd með Bretakonungi, páfanum og tónlistaríkonum. Á nýjustu ljósmyndinni má sjá Dorrit með breska stórleikaranum Sir. Michael Caine og breska grínleikaranum og rithöfundinum David Walliams en þau virðast vera á veitingastað.
Við ljósmyndina skrifar Dorrit:
„Hver hefur ekki lesið nýju bókina eftir David Walliams? En bíðið eftir myndinni!“
Walliams gerði fyrst garðinn frægann í grínþáttunum Little Britain fyrir tuttugu árum en hefur síðustu ár slegið rækilega í gegn sem barnabókahöfundur. Hinn 92 ára gamla Sir. Michael Caine þarf vart að kynna en hann er þrefaldur Óskarsverðlaunahafi.
Hér má sjá hina skemmtilegu ljósmynd:
Komment