1
Innlent

Drengir útilokaðir frá kennslu eftir kvörtun vegna kennara

2
Innlent

Kanarífarar minnast Klöru á Klörubar

3
Heimur

Sá grunaði í hvarfi Madeleine sendi lögreglunni óhugnanlegt bréf

4
Fólk

Hallgrími barst gjafapoki úr óvæntri átt

5
Pólitík

Þóra Kristín rífur stjórnarandstöðuna í sig

6
Fólk

Geri veldur reiði innan Spice Girls

7
Innlent

Segir þjóðarmorð nú orðið að meginstraumsviðhorfi

8
Heimur

Elon Musk virðist sjá eftir Epstein-færslunni

9
Heimur

Netanyahu viðurkennir að vopnaður glæpahópur starfi fyrir Ísrael á Gaza

10
Fólk

Sonur Önnu hrekkti tengdaföður sinn á Tenerife

Til baka

Dómsmálaráðherra minnir á mikilvægi hinseginbaráttu

Þorbjörg Sigríður fjallaði um átak íslenskra stjórnvalda til að berjast gegn kynferðislegri áreitni og mikilvægi hinseginbaráttu

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Íslands.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra ÍslandsÁrlegur fundur Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna er í New York

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, tekur þátt í árlegum fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Íslands hönd en fundurinn var settur í gær. Greint er frá þessu vef stjórnarráðsins.

Lagði hún áherslu á mikilvægi samstöðu Norðurlandaþjóðanna í viðbrögðum við bakslag í kynja- og hinseginbaráttunni á fundi sínu með Simu Bahous, framkvæmdastjóra UN Women, og öðrum jafnréttisráðherrum Norðurlandanna við upphaf fundarins.

Samkvæmt tilkynningu frá stjórnarráðinu fjallaði Þorbjörg Sigríður sérstaklega um lagabreytingar og árangursríkt átak íslenskra stjórnvalda til að berjast gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi á netinu í pallborði norrænu jafnréttisráðherranna undir yfirskriftinni Sameinist okkur í viðbrögðum við bakslaginu. Jafnframt lagði ráðherra áherslu á árangur Íslands í jafnréttismálum og dró fram mikilvægi samstarfs stjórnvalda og frjálsra félagasamtaka í því samhengi.

„Íslendingar standa framarlega á sviði jafnréttismála. Við höfum tryggt rétt beggja foreldra til fæðingarorlofs, gripið til aðgerða til að draga úr ofbeldi gegn konum og stuðlað að launajafnrétti svo dæmi séu nefnd. Við erum í fremstu röð hvað varðar réttindi hinsegin og transfólks í Evrópu og stefnum að því að gera enn betur því eins og við vitum er baráttunni hvergi nærri lokið,“ sagði Þorbjörg Sigríður um málið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Dóttir Putins
Heimur

Meint laundóttir Pútíns starfar á listastöfnum í París sem sýna verk gegn stríði

Anna Kristjánsdóttir
Fólk

Sonur Önnu hrekkti tengdaföður sinn á Tenerife

Greta Thunberg
Heimur

„Ísrael vill ekki gera Gretu að píslarvotti“

Miguel Uribe
Heimur

Forsetaframbjóðandi gekkst undir vel heppnaða skurðaðgerð eftir skotárás

Geri
Fólk

Geri veldur reiði innan Spice Girls

Kerti
Innlent

Kanarífarar minnast Klöru á Klörubar

Hallgrímur Helgason
Fólk

Hallgrími barst gjafapoki úr óvæntri átt

Lögreglan
Innlent

Æsilegur eltingarleikur lögreglu endaði með handtöku

Loka auglýsingu