
The Sixth Sense-leikarinn Haley Joel Osment mun að öllum líkindum sleppa við fangelsisvist eftir að hann var handtekinn vegna ölvunar á almannafæri, þar sem dómari hefur ákveðið að senda hann í meðferðarúrræði vegna vímuefnavanda í stað þess að dæma hann til fangelsis.
Samkvæmt tímaritinu People var Osment leiddur fyrir dóm á mánudag og fékk hann þar eins árs frávísunarúrræði (e. „diversion program“). Hann þarf nú að sækja þrjá AA-fundi á viku næstu sex mánuði og hitta sálfræðing sinn tvisvar í viku.
Saksóknari í Mono-sýslu mótmælti þeirri ákvörðun að bjóða Osment meðferðarúrræði, með vísan til fyrri brota hans. Osment var áður handtekinn árið 2006 fyrir að aka undir áhrifum og klessa bíl sínum á múrsteinsstöpul.
Osments kemur næst fyrir dóm 5. janúar 2026, þar sem metið verður hvort hann hafi fylgt skilyrðum úrræðisins.
Handtakan átti sér stað í Mammoth Lakes þar sem hann var stöðvaður fyrir ölvun á almannafæri og vörslu ólöglegra vímuefna. Á myndbandsupptöku frá búkmyndavél lögreglu sást lögregla finna efni sem síðar var sagt vera kókaín. Osment heyrðist einnig beita gyðingahatri og kalla gyðingaslangri að lögreglumanni, orðalag sem hann sagðist síðar hafa notað í „miklu ölvunarástandi“.
Hann hefur beðist afsökunar á hegðun sinni og lýst yfir vilja til að bæta fyrir mistök sín.
Komment