
Patrik Ingi Heiðarsson sendir út neyðarkall því hann er í miklum vandræðum í lífi sínu.
Og segir:
„Góðan daginn gott fólk. Nú stend ég fyrir því að þurfa kæra og reyna að komast með málið mitt í fréttir því þannig er mál með vexti að ég fékk úthlutaða íbúð sem ég hef ekki getað flutt í vegna skorts á afgreiðslu hjálpartækja.“
Staðan sem Patrik Ingi er í er ekki góð því hann fær „ekki neina heimahjúkrun“ sem hann telur lífsnauðsynlegt að hann fái því hann er „með tæplega 5 sentimetra djúpt þrýstingssár á sitjandanum“ sem hann segir vera „eftir ómannúðlega meðferð í Frakklandi.“
Hann segist vera „búinn að borga tæplega 400 þúsund krónur í leigu“ og sér ekki fram á að „geta flutt.“
Patrik Ingi segir að þann „1 júlí er kominn annar mánuður sem ég þarf að greiða í leigu“ en að hann hafi ekki „fengið neina örorku ennþá.“
Hann segir að ef hann væri vinnufær mundi hann „vinna en þar sem ég er bundin við hjólastól þá þarf það að bíða“ og hann endar færslu sína á þessum orðum:
„Það er ömurlegt líf að vera fastur inná stofnun.“
Komment