
Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri, tilkynnti á samfélagsmiðlum um helgina að hann hafi sett fjölskyldubílinn á sölu.
„Jæja þá er búið að klára sölu Perlunnar og rétt að snúa sér að næsta máli,“ skrifaði Framsóknarmaðurinn knái. „Það er stundum haft á orði að ekki sé nóg byggt af húsnæði og því legg ég hér mitt af mörkum og sel „fasteign á hjólum“ á kostakjörum. Volvo XC 90 árgerð 2017 sem hefur reyndar gengið undir nafninu X-B 90 frá því ég keypti hann,“ og vísar þar í listabókstaf Framsóknarflokksins
Einar segir að bílinn sé prýðilegur fjölskyldubíll af sænskum ættum og hafi ekki verið á nagladekkjum síðan veturinn 2022 enda hafi meirihlutinn bætt snjómoksturinn í borginni eftir vitleysuna það ár.
Einar vill fá 5.490.000 krónur fyrir bílinn en hann er ekinn 105.000 km.


Komment