
VeðurstofanKort eru björt og brakandi af góðu veðri
Það lítur allt út fyrir það að sólin muni skína glatt og veðrið gæla við okkur. Von er á allt að 18 stiga hita suðvestanlands, en bjartviðri verður á nánast öllu landinu í dag. Hiti getur mögulega og vonandi farið upp í 18 stig suðvestanlands.
En ljóst er að það verður sólríkt á höfuðborgarsvæðinu og víðar um helgina.
Það er hæð á Grænlandshafi sem stjórnar veðrinu, með norðaustlægri eða breytilegri átt.
Kemur fram á Veðurstofunni að hitinn í dag verður frá um það bil 7 stigum við norðausturströndina. Lágský verða þó viðhangandi fram eftir morgni á Norðurlandi sem og Austurlandi, líkt og segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofunni.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Komment