
Biskupafundur tekur undir yfirlýsingu forsætisráðherra og fleiri þjóðarleiðtoga og utanríkisráðherrum um að koma þurfi í veg fyrir fleiri hörmungar á Gaza en greint er frá þessu í tilkynningu frá Þjóðkirkju Íslands.
„Við skorum á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að stíga fast til jarðar þegar kemur að stöðunni á Gaza. Hún er löngu komin út yfir öll mannúðleg mörk.
Allar manneskjur eru skapaðar í Guðs mynd og hver einasta manneskja er jafn dýrmæt. Frá 7. október 2023 hafa tugir þúsunda látið lífið í þýðingarlausum stríðsátökum. Neyðaraðstoð hefur verið haldið frá íbúum Gaza síðan í janúar. Manngerð hungursneyð geisar og saklaust fólk lætur lífið hvern dag. Kristnar kirkjur geta ekki staðið hjá og þagað og það gera biskupar Þjóðkirkjunnar ekki heldur.“
Þá segja biskupanir að á tímum sem þessum upplifir fólk sig gjarnan áhrifalaust en segir að fólki ekki þegja þegar því er misboðið. „Við getum beðið fyrir sáttargjörð og friði. Við getum haft áhrif með því að styðja hjálparstarf með einum eða öðrum hætti. Við getum minnt á, hvar sem við erum stödd hverju sinni, að ofbeldið sem geisar nú fyrir botni Miðjarðarhafs getur aldrei leitt þessi átakamál til lykta– heldur er ofbeldið sjálft vandamálið.
Sama hve máttlaus við kunnum að upplifa okkur gagnvart atburðum utan landsteina Íslands megum við aldrei sætta okkur við að ofbeldi, hvar sem er í heiminum, sé á einhvern hátt ásættanlegt eða eðlilegur hluti af tilveru okkar. Slík uppgjöf fer gegn öllu því sem kristin trú stendur fyrir.“
Biskupar Íslands muni minna á slíkt þar til öllum árásum er hætt, saklausu fólki þyrmt, öllum gíslum er sleppt og að opnað er fyrir neyðaraðstoð til svæðisins.
„Þá hvetur biskupafundur íslensk stjórnvöld til þess að halda áfram að beita sér fyrir sáttargjörð og friði og að alþjóðalögum verði fylgt, að komið verði á varanlegu vopnahléi og leið að réttlátum friði verði fundin sem tryggir öllum manneskjum á svæðinu færi á að lifa við réttlæti og varanlegan frið.“
Undir yfirlýsinguna rita Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti og Gísli Gunnarsson, vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal.
Komment