
Mikið hefur rætt undanfarna daga um hinn unga Oscar Anders Florez Bocanegra en til stóð að vísa honum úr landi. Ákveðið var hins vegar fyrr í vikunni að fresta brottflutningi hans en Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþings, greip inn í málið.
Víðir sendi tölvupóst á útlendingastofnun og fullyrti að yfirgnæfandi líkur væru á því að Oscar myndi fá veittan íslenskan ríkisborgararétt frá Alþingi. Ákvað stofnunin því að fresta brottflutningi hans.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins eru mjög ósáttir með þessa hegðun Víðis og hafa kallað hana pólitískt inngrip og sakað hann um trúnaðarbrest. Í viðtölum hefur Víðir sagt að hann standi við ákvörðun sína.
Í færslu á samfélagsmiðlum bendir Þórunn Ólafsdóttir á hræsni Sjálfstæðisflokksins í þessum efnum. „Hér skiptir máli hvort þú ert barn eða Albarn,“ skrifar Þórunn á Facebook og vísar þar í Damon Albarn, söngvara Blur og Gorillaz, en hann fékk ríkisborgararétt á Íslandi árið 2021 eftir að hafa heimsótt Pál Magnússon, þáverandi formann allsherjar- og menntamálanefndar Alþings, á Alþingi.
Þá hafi þingmenn ekki verið jafn ósáttir og nú.
„Ríkur, hvítur og frægur karl kíkti í kaffi til nefndarformanns hér um árið og sagðist vilja fá ríkisborgararétt, sem hann fékk. Páli þótti svo mikið til heimsóknarinnar koma að hann smellti myndinni af þeim félögum sjálfur á netið. Ég hef nákvæmlega ekkert á móti þvi að umræddur maður hafi fengið ríkisborgararétt, mér finnst bara ágætt að rifja upp hentisemi þessara háu herra.“
Komment