
Tónlistarmaðurinn og raunveruleikastjarnan Bassi Maraj hefur áður verið dæmdur fyrir líkamsárás en hann var í gær dæmdur fyrir að ráðast á leigubílstjóra í Bryggjuhverfinu.
Bassi, sem heitir réttu nafni Sigurjón Baltasar Vilhjálmsson, var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir árásina og þarf hann að borga leigubílstjóranum 150.000 krónur í miskabætur auk vaxta. Þá þarf hann einnig að borga 167.400 krónur í málskostnað brotaþola.
Í dómnum kemur fram að Bassi hafi áður hlotið dóm fyrir líkamsárás en það var 30. júní árið 2016. Ekki eru veittar meiri upplýsingar um þann dóm og hann er ekki að finna á vef íslenskra dómstóla. Einnig kemur fram að hann hafi hlotið dóm fyrir umferðarlagabrot árið 2023 en þau brot höfðu ekki áhrif við ákvörðun refsingar í nýjasta máli hans.
Komment