Karlmaður sem er á þrítugsaldri situr í gæsluvarðhaldi, er grunaður um alvarlega stunguárás í Reykjanesbæ.
Fékk lögreglan tilkynningu um árásina um klukkan tíu síðasta föstudagskvöld.
Kemur fram hjá lögreglu að leit að meintum árásarmanni hafi hafist strax. Fannst maðurinn á höfuðborgarsvæðinu skömmu eftir miðnætti, um tveimur klukkustundum eftir árásina.
Sá er varð fyrir árásinni er karlmaður á sjötugsaldri. Var hann fluttur á sjúkrahús eftir árásina og þótti ástand hans um tíma vera mjög alvarlegt, en nú er komið á daginn að maðurinn er úr lífshættu.
Árásin verður rannsökuð sem tilraun til manndráps en Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald sem rennur út næsta föstudag.
Að sögn lögreglu miðar rannsókn málsins vel og ákvörðun um það hvort farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald verður tekin í vikunni eftir því sem rannsókn málsins miðar áfram.
Komment