1
Innlent

Selma valin fram yfir Höllu Maríu og Veru Sólveigu

2
Innlent

„Stolni“ matarvagninn settur á uppboð

3
Innlent

Boðflennum skipað að hypja sig

4
Pólitík

Segir Gunnar Smára hafa logið „í beinni útsendingu á Bylgjunni“

5
Innlent

Sigfús kærir þingmann fyrir hatursorðræðu

6
Pólitík

Utanríkisráðuneytið leiðréttir frétt Morgunblaðsins

7
Pólitík

Helgi Magnús mun fá tæpar 200 milljónir

8
Fólk

Landsliðskona selur huggulegt raðhús í Garðabæ

9
Heimur

Safn leitar að tveimur klaufskum ferðamönnum

10
Innlent

Harmleikurinn við höfnina: Franska sendiráðið neitar að tjá sig um málið

Til baka

Anna Kristjáns situr uppi með lygina með bros á vör

„Þetta kuldatal Svala var eins og talað frá mínu hjarta“

Anna Kristjánsdóttir
Anna KristjánsdóttirNú vita Tenerife-búar að Anna er frægur bloggari.

Anna Kristjánsdóttir er ánægð með kuldatal Sigvalda Kaldalóns eða Svala eins og hann er kallaður en þau búa bæði á Tenerife.

Vélstjórinn og húmoristinn Anna Kristjánsdóttir talar meðal annars um verðið, líkt og oft áður, og eiginhandaráritun sem hún veitt aðdáendum sínum, í nýjustu dagbókarfærslu sinni sem hún birti á Facebook.

„Ég heyrði viðtal á Rás 2 við hann Svala félaga minn þar sem hann lýsti veðrinu síðasta mánuðinn á Tenerife. Ég fagnaði þessu viðtali því loksins kom einhver sem tjáði sig um fimbulkuldann á Tenerife rétt eins og ég hefi margsinnis gert og enginn hefur lagt trúnað á orð mín og talið orð mín um kuldann á Tenerife vera vesældóm kuldaskræfunnar.“

Anna segir einnig frá Íslendingum sem báðu hana um að árita ævisögu hennar á bar sem hún var stadd á en hún notaði tækifærið og sýndi barþjóninum bókina. Segist hún nú vera talin frægur rithöfundur á Tenerife. Vinur hennar leiðrétti reyndar þá lygi en hún segist sitja upp með hana en með bros á vör.

„Þetta kuldatal Svala var eins og talað frá mínu hjarta. Síðasti mánuður hefur verið kaldur og enn sér ekki fyrir endann á hretinu. Í gærkvöldi hittumst ég og Pétur á Babylon og vorum að sjálfsögðu kappklædd enda kalt undandyra. Við lifðum þetta af, en svo komu Tryggvi og Guðrún og höfðu meðferðis ævisögu mína sem þau óskuðu áritunar. Að sjálfsögðu varð ég við beiðni þeirra, montaði mig aðeins í leiðinni og sýndi barþjónunum bókina og nú halda þau að ég sé frægur rithöfundur. Pétri tókst reyndar að leiðrétta verstu lýgina og fyrir bragðið er ég aðeins fræg sem bloggari, en samt með ævisögu í farteskinu.

Ég sit uppi með lýgina með bros á vör.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Styrkja Mannlíf

Má bjóða þér að styrkja starfsemi Mannlífs með mánaðarlegu framlagi?


Komment


Lögreglan
Innlent

Bíll á hvolfi utanvegar

Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvar hann var staðsettur
fálkaorðan 17. júní 2025
Innlent

Rauðsokka og læknir meðal þeirra sem sæmd voru fálkaorðu

Erna Kristín Stefánsdóttir - Ernuland
Fólk

Sorgin fléttaðist saman við gleði Ernu

Kaleo
Menning

KALEO sendir frá sér vögguvísu

helgi Magnús
Pólitík

Helgi Magnús mun fá tæpar 200 milljónir

Changde
Heimur

Níu létust í sprengingu í flugeldaverksmiðju

Hafnarfjörður 2024
Innlent

Boðflennum skipað að hypja sig

Edition
Innlent

Franska fjölskyldan búsett á Írlandi: „Rannsókn miðar ágætlega“

Ingibjörg Isaksen
Pólitík

Ingibjörg þakkaði Þorbjörgu fyrir afsökunarbeiðnina

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Pólitík

Utanríkisráðuneytið leiðréttir frétt Morgunblaðsins

traustibreiðfjörð
Pólitík

Segir Gunnar Smára hafa logið „í beinni útsendingu á Bylgjunni“

Sigríður 2
Innlent

Lögreglan óskar eftir aðstoð almennings við finna Sigríði

Fólk

Erna Kristín Stefánsdóttir - Ernuland
Fólk

Sorgin fléttaðist saman við gleði Ernu

Samfélagsmiðlastjarnan opnaði sig um erfiða meðgöngu
Bekkur Kópavogur Bryndís Klara
Fólk

Bryndísarbekkir settir upp víða í Kópavogi

Klettás Elfa
Myndir
Fólk

Landsliðskona selur huggulegt raðhús í Garðabæ

Sunnubraut
Fólk

Illa gengur að selja draumahús í Kópavogi

Embla Bachman í pontu á viðburði Riddara Kærleikans
Myndir
Fólk

Kærleikurinn var leiðarstefið í Iðnó

Oddur Stöð 2
Fólk

Oddur fékk sér húðflúr af merki Stöðvar 2 rétt fyrir nafnabreytingu

Loka auglýsingu