1
Landið

„Þess vegna er þetta dauðasvæði“

2
Fólk

Dalmatíuhundur Eddu Bjarkar leiddi hana upp að altarinu

3
Innlent

Drengurinn fundinn

4
Innlent

Grímuklæddir menn eltu flogaveikan

5
Innlent

Drengur lést þegar dráttarvél fór í Hvítá

6
Landið

Séra María Guðrún fer í Hofsprestakall

7
Pólitík

„Verndarþátturinn veikst og stöðugt að honum sótt“

8
Innlent

Ökuníðingur á nagladekkjum reif kjaft við lögregluna

9
Pólitík

Ólafur Þór verður sveitarstjóri

10
Pólitík

Vogar hafna sameiningu

Til baka

Anna hyggur á ný ævintýri á sjónum

„Ég er svo sannarlega tilbúin til slíkrar ferðar og hlakka til.“

Anna Kristjánsdóttir
Anna KristjánsdóttirVélstjórinn kallar ekki allt ömmu sína.

Anna Kristjánsdóttir hyggur á ný ævintýri á sjónum. Hún ætlar nefnilega að skella sér í kafbátaferð með vini sínum.

Vélstjórinn fyndni, Anna Kristjánsdóttir skrifar um kafbát í nýjustu dagbókarfærslu sinni á Facebook. Í upphafi færslunnar segir hún frá gærkvöldinu þar sem hún og nokkrir vinir hennar söfnuðust saman á bar á Tenerife, þar sem hún býr.

„Dagur 2115 – Kafbáturinn.

Við söfnuðumst nokkur saman á Búkkanum í gærkvöldi, ekki aðeins ég og systurnar frænkur mínar, heldur og Einar Örn og Halldóra svo ekki séu nefnd Berglind og Steinar frá Vestmannaeyjum.

Við Einar Örn höfðum marga hildina háð, þó innan þeirra marka sem starf hjá björgunarsveitum gefur af sér, en Halldóra kona hans er starfandi hjá Landsbankanum hvar ég hafði lent í vandræðum með í fyrradag.“

Anna segir því næst frá löngun Einars vinar hennar til þess að ferðast með kafbáti og auðvitað var gamli vélstjórinn til í það ævintýri:

„En nú var komin ný vænting í hlutina. Einar langaði til að ferðast með kafbát, en það var of mikið fyrir Halldóru og hann bauð mér að koma með. Að sjálfsögðu var ég tilbúin til slíks ævintýris, hafði oft heyrt talað um gula kafbátinn á Tenerife og einungis á jákvæðan hátt þó án þess að prófa að fara með kafbát til sjós. Ég er svo sannarlega tilbúin til slíkrar ferðar og hlakka til.“

Yellow Submarine
Guli kafbátur Bítlanna„Fulla ferð áfram hr. Boatswain, fulla ferð áfram!“

Nú segist Anna bíða eftir að Einar vinur hennar hafi samband varðandi kafbátaferðina en lofar lesendum sínum að ekki verði kafað neitt sérstaklega langt niður í undirdjúpin.

„Nú er bara að bíða þess að Einar Örn hafi samband og ég er tilbúin til slíkrar ferðar. Ég lofa ykkur samt því að ferðin niður í hafdjúpin verður ekkert á borð við það þegar einhverjir vildu komast niður að Titanic, enda skilst mér að ferðin í undirdjúpin verður vart nema niður á 20 – 30 metra dýpi, en samt nóg til að njóta undirdjúpanna. Sömuleiðis verður þessi skemmtiferð ekkert á við það sem áhöfnin á U-96 þurfti að gangast undir í seinni heimsstyrjöld samanber kvikmyndina Das Boot, frábærustu kvikmynd allra tíma.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Eddad Björk Arnardóttir2
Fólk

Dalmatíuhundur Eddu Bjarkar leiddi hana upp að altarinu

Þyrla Landhelgisgæslunnar
Innlent

Leit stendur yfir að sundmanni við Örfirisey

Lögreglan
Innlent

Ökuníðingur á nagladekkjum reif kjaft við lögregluna

Kerti
Innlent

Drengur lést þegar dráttarvél fór í Hvítá

Guðmundur Ingi og Svandís Svavarsdóttir mynd VG
Pólitík

„Verndarþátturinn veikst og stöðugt að honum sótt“

Loka auglýsingu