
Stjórnvöld hér á landi ætla að vísa óléttri konu í hjólastól úr landi og er þessi niðustaða þvert á mat læknis.
Konan er rússneskur ríkisborgari og er hún í áhættumeðgöngu; langt gengin með tvíbura.
Þótt læknisvottorð sé til staðar hefur Útlendingastofnun synjað því að framkvæmd endursendingar verði frestað.
Mariiam Taimova heitir unga konan sem um ræðir; hún kom ásamt manni sínum og eins árs gömlu barni til Íslands á síðasta ári. En vegna viðkomu fjölskyldunnar í Króatíu hefur mál þeirra verið afgreitt sem svokallað Dyflinnarmál.
Er konan nú á 28. viku meðgöngu; glímir við alvarlega heilsufarskvilla og er háð hjólastól; þarfnast aðstoðar við daglegar athafnir.
Læknir hefur gefið út vottorð sem staðfestir að konan sé ekki í ástandi til að fljúga. og er til skoðunar að vísa henni úr landi með sjúkraflugi.
Lögfræðingur fjölskyldunnar, Arndís Ósk Magnúsdóttir, segir í samtali við RÚV að konan yrði þá send til Króatíu, en landið hefur verið gagnrýnt af mannréttindasamtökum fyrir að senda fólk aftur til Rússlands:
„Það er alls ekki víst að þau fái alþjóðlega vernd Í Króatíu og í rauninni virðist vera, samkvæmt fréttum frá maí á þessu ári, einhver möguleiki á því að þeim yrði bara snúið til Rússlands."
Komment