1
Heimur

Fjögurra barna faðir fannst látinn í klettasprungu á Spáni

2
Menning

Sigurlíkur VÆB hafa aldrei verið betri

3
Heimur

Johnny Depp mætti óvænt á veitingastað á Tenerife

4
Innlent

Unglingur kveikti í grunnskóla

5
Innlent

Sveinbjörn játaði líkamsárás fyrir dómi

6
Fólk

Skáld selur krúttíbúð

7
Fólk

Anna tekur fulla ábyrgð á sumarblíðunni á Íslandi

8
Menning

Alþjóðleg samtök síonista hvetja fólk til að kjósa Ísrael í kvöld

9
Kynning

Tilkynning: Nýtt og breytt Mannlíf

10
Heimur

Stofnandi Ben & Jerry’s handtekinn við mótmæli á Bandaríkjaþingi

Til baka

162 ný leikskólapláss í Reykjavík

Heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður 2,1 milljarður króna.

img_1382_custom
Frá leikskólastarfi borgarinnar.Stórt átak í leikskólamálum var samþykkt í borgarstjórn.
Mynd: Reykjavik.is

Borgarráð samþykkti í dag að ráðast í umfangsmikið átak til að fjölga leikskólaplássum í Reykjavík um 162. Samhliða verður bætt aðstaða starfsfólks í nokkrum leikskólum borgarinnar. Þetta kemur fram á heimasíðu Reykjavíkurborgar.

Á undanförnum árum hefur Reykjavíkurborg bæði fjölgað leikskólaplássum og sinnt viðhaldi og endurnýjun á eldri leikskólabyggingum, segir í fréttinni. Nú verður haldið áfram á þeirri braut með verkefninu Brúum bilið, sem snýst um að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar.

Í nýja átakinu verða byggðar 14 nýjar kennslustofur við sex leikskóla um borgina, ásamt tengibyggingum og lóðaframkvæmdum. Þetta skapar ekki aðeins ný leikskólapláss heldur bætir einnig vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk.

Leikskólarnir sem fá viðbætur eru Grandaborg, Hólaborg, Árborg, Jörfi, Maríuborg og Vesturborg. Með framkvæmdunum verða eldri og minni kennslustofur teknar úr notkun, en samtals eykst fjöldi leikskólaplássa verulega.

Samkvæmt fréttinni er það forgangsmál hjá borginni að mæta þörfum fjölskyldna og skapa góðar aðstæður fyrir leikskólastarf, bæði fyrir börn og starfsfólk.

Heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður 2,1 milljarður króna, þar af fara 150 milljónir í lóðaframkvæmdir. Samþykkt borgarráðs gerir kleift að hefja innkaupaferli fyrir verkefnið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Gjaldskylda
Innlent

Íslendingar hneykslaðir vegna græðgi við náttúruperlu

tennur2
Innlent

Stefán braut tönn í vini sínum vegna „graspípu“

Hnúfubakur
Landið

Hnúfubakur á sveimi innst í Reyðarfirði

Kertaljós
Minning

Hjalti Kristgeirsson er fallinn frá

Gaza
Heimur

Heimurinn þögull á meðan 45 börn voru drepin á tveimur dögum

Tinna Rut Isebarn fyrrum framkvæmdastjóri LUF
Innlent

Tinna Rut hættir sem framkvæmdastjóri

Björn Leví Gunnarsson
Skoðun

Björn Leví Gunnarsson

Að svæfa mál í nefnd - Að vera þingmaður - 4. kafli